15.7.2008 | 22:04
Veik á versta tíma
Ég var búin að hugsa með mér hvað það yrði óheppilegt að börnin yrðu veik í dag. Við þurftum að skila því sem við sendum út fyrir kl. fjögur í dag og ég á að vera tilbúin með stórt verkefni á morgun. Það er skemst frá því að segja að ég fór veik heim úr vinnunni um hádegi og er búin að liggja alveg bakk í allan dag. Er samt að hjarna við. En þetta gat ekki komið upp á verri tíma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.7.2008 | 17:00
Leiðindi
Gvöð hvað ég er orðin hundleið á að pakka. Mér líður eins og karakter í Groundhog day. Hver dagur er eins og snýst um eitt: Að pakka. Ég væri alveg til í að hraðspóla yfir þennan tíma í lífi mínu og gera eitthvað annað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.7.2008 | 14:49
Pakkað - en ekki hvað!
Hér haldið áfram að pakka niður - hægt og bítandi. Öllu er vandlega pakkað inn ef svo færi að við yrðum lengur en í ár. Þá er hægt að moka öllu heila galleríinu á bretti og inn í gám án þess að pakka öllu upp og niður aftur. Já, hér er hugsað fyrir öllu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
7.7.2008 | 22:49
Pítsuspaða pakkað
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.7.2008 | 14:46
Rauðhærðir gera allt vitlaust.
Það er ekki að spyrja að félögum mínum í rauðhausafélaginu. Gera allt vitlaust. Vonandi verður meiri ró næstu nótt.
Erilsöm nótt á írskum dögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.7.2008 | 13:47
20 dagar til stefnu
Nú eru tuttugu dagar þar til við flytjum af landi brott og 13 dagar þar til ég verð 37 ára. Úff. Ég keypti mér fínerís Estée Lauder hrukkukrem til að halda mér unglegri - ekki veitir nú af. Amma notaði alltaf Estée Lauder krem og var ungleg og sæt alla ævi. Ég vonast til að Estée geri það sama fyrir mig. Svo styrkir fyrirtækið rannsóknir á brjóstakrabbameini en það styð ég heilshugar.
Annars byrjum við fyrir alvöru að pakka niður í dag. Til að auka nú á dótið sem við tökum með fórum við í dótabúð í morgun og leyfðum krökkunum að velja sér dót fyrir peninginn frá Helgu Páls frænku. Hún er orðin níræð en tók á móti okkur með þvílíkum trakteríngum fyrir vestan og leysti börnin út með peningagjöf þrátt fyrir hávær mótmæli okkar foreldra. Okkur fannst ferlegt að þiggja peninga af aldraðri frænku en hún lét allar mótbárur sem vind um eyru þjóta. Hildur valdi sér Bratzdúkku og Bratzglingur. Leifur valdi sér Spidermankall og Haukur fékk dótafjarstýringu sem við foreldrarnir völdum. Svo við fáum að hafa okkar í friði ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.7.2008 | 14:55
Pakkað upp og niður
Þá erum við komin úr fríinu fyrir vestan. Keyrðum suður í einum rykk og skiptust á skin og skúrir. Ferðin gekk vel og nú er að pakka upp úr töskunum og svo förum við að pakka búslóðinni niður í kass. Mín bíða skemmtileg verkefni - eða ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.7.2008 | 13:40
Á ferð og flugi
Erum að ferðalagi. Byrjuðum á ættarmóti í Reykjanesi, í kulda og trekki. Fórum þaðan vestur í Hnífsdal, áfram í kulda og trekki. Erum ekki heppin með veður - en það er gaman að koma vestur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.6.2008 | 23:06
Góðar fréttir
Verð á eldsneyti lækkar um 2 krónur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.6.2008 | 23:04
Leifur leiður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Mínir tenglar
Fjölmiðlar
Vinnan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 1296
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar