jaríjaríjarí!

Hann hefur eflaust lekið þessu sjálfur. Sem er bara fínt. Gott á þessa Breta. Íslendingar eiga að læra af 007 og láta þá finna fyrir tevatninu.
mbl.is Furðulegt að samtalið skyldi leka í fjölmiðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmalausir Danir

Danir eru ekki eins og Íslendingar. Í dag var ég t.d. á pósthúsinu, var eini við skiptavinurinn og gekk því að afgreiðsluborðinu. Spurði hvort ég gæti ekki fengið afgreiðslu, en ég hélt á pappírsrúllu, korti og skreytiborða (það er hægt að kaupa ýmislegt á pósthúsinu hér). Jú, ég gat fengið afgreiðslu. ,,En þú verður fyrst að taka númer," sagði afgreiðslukonan ákveðin. ,,Taka númer?" spurði ég í forundran því ég var sú eina þarna inni. ,,Já, þú verður að taka númer," sagði hún og benti á númerastandinn sem var í nokkurri fjarlægð. Ég gekk að hillunni, skilaði pappírnum og hinu dótinu og gekk síðan út.

Jæja,

það er kannski kominn tími á smáblogg. Hildur var í haustfríi í síðustu viku. Hér er haustfrí í október og vetrarfrí í febrúar. Óhætt er að segja að þetta hafi verið kærkomið frí. Sérstaklega þar sem við þurftum ekki að rjúka á fætur fyrir klukkan sjö eins og vanalega. Þetta var bráðskemmtilegt frí. Við fórum með Eir, Elísu og Bjarka, og auðvitað Leifi og Hauki, að tína epli, en við erum alveg orðin eplatínsluóð. Tókum með nesti og fengum frábært veður. Frá eplalundinum lá leiðin til Roskilde þar sem við skoðuðum kirkjuna. Það var mjög gaman, enda kirkjan afar sérstök þar sem hún er eiginlega grafhýsi konunga og biskupa og örugglega annarra karla sem gerðu garðinn frægan fyrr á öldum. Frá Roskilde fórum við til Frederikssund að heimsækja Sollu og loks heim. Daginn eftir skruppum við til Dragör, en það er fallegur bær úti á Amager. Við létum okkur nægja að fá okkur að borða á Hotel Strand, rúntuðum svo um og létum okkur dreyma um að búa þarna. Dragör er við sjávarsíðuna og þaðan sést í Eyrarsundsbrúnna. Við fórum einnig í dýragarðinn, skoðuðum dýrasafnið og fleira. Jón Áki var fjarri góðu gamni því hann er í próftörn þessa dagana.

Á morgun ætlum við að borða með Revíugarðsgenginu og á laugardaginn er diskópartí hjá bekknum hans Jóns. Það er sem sagt nóg fram undan.


Tvö Pálshús

Við gerðumst áskrifendur að Net-Mogganum svo nú getum við lesið Moggann á rafrænu. Í morgun sá ég frétt sem mér þótti vænt um að lesa, en það var um Pálshús, þjónustuhús sem búið er að opna á Kolfreyjustað. Af myndinni að dæma er þetta hið laglegasta hús, með torfþaki, og í stíl við kirkjuna. Ég hlakka til að skoða Pálshús sjálf næst þegar ég á leið austur á Fáskrúðsfjörð, sem er, eins og allir vita, fallegasti fjörður Íslands og þótt víðar væri leitaðSmile Mér fannst ég eitthvað kannast við þetta heiti, Pálshús, en það er nefnt eftir skáldinu Páli Ólafssyni sem ólst upp á Kolfreyjustað. Það var að renna upp fyrir mér að í Hnífsdal er einnig Pálshús, sem er í eigu ættingja Jóns Áka en í því húsi bjó Páll Pálson, afi hans og húsið dregur heiti sitt af honum.


Leifur kvennagull

Leifur stendur sig vel í leikskólanum Smile. Hann er búinn að vera í skóginum þessa vikuna. Þar hafa þau búið til fígúrur úr kastaníuhnetum, eldað súpu yfir opinum eldi, skoðað snigla og köngulær og margt fleira. Leifur er farinn að eignast vini og stelpunum finnst mjög gaman að hafa hann, eins og einn kennarinn orðaði það. Leifur leikur sér mest við tvær rosalega sætar stelpur sem báðar gætu verið módel hjá Benetton. Hann er greinilega smekkmaður á kvenfólk! Það er líka svo gaman hvað Leifur er alltaf ánægður með allt sem hann fær. Um daginn gaf Steinvör honum Spiderman-vettlinga, sem hann svaf með. Hann fékk nýja úlpu og buxur í vikunni (já, áður en kreppan skall á af fullum þunga) og hann hefur varla farið úr þeim.

 


Ýsa og súkkulaði

Það er ekkert sérstaklega gaman að vera námsmannseiginkona í Danmörku þessa dagana. Haukur byrjar í leikskóla þann 16. og þá fer ég beinustu leið í leit að vinnu. Öll tilboð verða skoðuð!! Gengið hefur rokkað upp og niður og það hefur áhrif á fjárhaginn. Núna er bara borðuð ýsa úr frystinum í boði Helgu frænku og svo fáum við okkur nammi í eftirmat í boði Steinvarar frænku. Takk fyrir matinn frænkur!

Við fórum í foreldraviðtal í skólanum hjá Hildi í dag. Hún fékk glimrandi einkunn hjá kennurunum sem sögðu að hún væri afar fljót að læra og skildi heilmikið. Hún er farin að tala smá dönsku, en sennilega verðum við hér heima síðust til að heyra orð af því. Kennararnir sögðu jafnframt ,,Alle i klassen elsker Hildur", sem var ægilega gaman að heyra. Síðan hitti ég frænku mína, sem býr hér, í fyrsta sinn í dag. Ömmur okkar voru systur og svo skemmtilega vill til að við heitum eftir þeim systrum. Við ætlum að halda mini-ættarmót hér í Kaupmannahöfn. Á næstunni verður haustfrí og stefnan er að gera eitthvað spennandi sem kostar helst ekki neitt. Allar tillögur vel þegnar.

 

 


Til lukku!

Mikið er ég ánægð fyrir hönd lóttóspilaranna. Gaman að heyra jákvæðar fréttir frá Fróni, ekki bara um fallandi krónu, uppsagnir og bankakaup ríkisins.


mbl.is Ung fjölskylda vann 14 milljónir í lottóinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sviðin jörð

Ég var að hugsa um að blogga um efnahagskrísuna, bankakrísu og hátt gengi sem er að sliga okkur hér í Revíugarðinum en ég ákvað að slá frekar á létta tóna. Þótt við séum flutt af landi brott og munum ekki taka slátur þetta árið þá sá Jón um að fylla upp í þjóðlega kvótann með því að svíða svið í gær. Já, við erum ekkert skárri en þessir útlendingar sem halda í sína siði fram í rauðan dauðann. Svo höfðum við ýsu úr frystinum í kvöldmat og brátt förum við að borða lambalærið sem Jón kom með að heiman síðast. Svo erum við svo heppin að Helga og Kolfreyja koma á morgun og þær eru þegar búnar að pakka niður seríosinu og orafiskibollunum. Við verðum því ekki í vandræðum með að halda í þjóðlegheitin á næstunni.

Um helgina fór ég út með nýjustu bestu vinkonum mínum sem búa hér í Revíugarðinum. Við ætluðum að fá okkur sússí og sjá Mama mia! en það endaði með að við fengum okkur spænskan mat og fórum síðan á Bláa hundinn sem er skemmtileg krá hér í nágrenninu. Síðan fór ég í pilates og er auðvitað enn með harðsperrur. Pilates er ekki beinlínis nein þrekleikfimi svo þolið mun sennilega ekki aukast hratt í þeirri iðju, en þetta er ægilega hollt og gott. Loks enduðum við með að  heimsækja Palla og Júlíönu, þar sem þeir bræður fóru að svíða svið, en við hin fórum í Frederiksberg Have sem er yndislegur garður hér rétt hjá. Við fengum síðan kjötsúpu í matinn þannig að við gerumst varla þjóðlegri en þetta.  


Allir að taka slátur

Ég held að hin hagsýna húsmóðir  (og þá er ég auðvitað líka að tala um karla) ætti að draga fram uppskriftabókina og taka slátur. Það er þjóðlegur og góður siður sem kostar lítið. Við höfum tekið slátur á hverju hausti í nokkur ár, ekki samt af hagsýnisástæðum heldur vegna þess að það er þrælgaman og markar upphafið á vetrinum. Það er greinilegt að efnahagsástandið er farið að koma við buddu landsmanna.
mbl.is Óunnar kjötvörur vinsælar í dýrtíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í ,,eplamó"

Hér í Danmörku kemst maður ekki í berjamó en hins vegar fórum við í ,,eplamó" um helgina. Palli bauð okkur með út í sveit, á stað sem tilheyrir landbúnaðarháskólanum. Þar voru margar tegundir af eplatrjám sem bókstaflega svignuðu undan eplunum. Við tíndum epli í nokkra poka og ætlum að baka eplakökur, búa til safa og eplamauk úr uppskerunni. Við fengum frábært veður en hér er samt aðeins farið að hausta. Eftir ,,eplamó" lá leið okkar til Roskilde, eða Hróarskeldu. Roskilde er sérlega fallegur bær og þar er margt að skoða, s.s. dómkirkjan og víkingasafnið. Það var gaman að bregða sér í hlutverk ferðamanna og skoða sig um á nýjum stað.

Í október byrjar svo Haukur í leikskóla. Hann er búinn að fá pláss í Lindehuset, sama leikskóla og Leifur er á. Ég ætla því að fara að kíkja eftir vinnu eða skella mér á dönskunámskeið - þótt ekki sé nema til að sýna mig og sjá aðra.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband