Leifur kvennagull

Leifur stendur sig vel í leikskólanum Smile. Hann er búinn að vera í skóginum þessa vikuna. Þar hafa þau búið til fígúrur úr kastaníuhnetum, eldað súpu yfir opinum eldi, skoðað snigla og köngulær og margt fleira. Leifur er farinn að eignast vini og stelpunum finnst mjög gaman að hafa hann, eins og einn kennarinn orðaði það. Leifur leikur sér mest við tvær rosalega sætar stelpur sem báðar gætu verið módel hjá Benetton. Hann er greinilega smekkmaður á kvenfólk! Það er líka svo gaman hvað Leifur er alltaf ánægður með allt sem hann fær. Um daginn gaf Steinvör honum Spiderman-vettlinga, sem hann svaf með. Hann fékk nýja úlpu og buxur í vikunni (já, áður en kreppan skall á af fullum þunga) og hann hefur varla farið úr þeim.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Einhverjar bjöllur hringja varðandi þennan sem á afmæli 11. ágúst.  Hann fékk mörg bónorð áður en skólaganga hófst..

Hringi um helgina,

mamma - amma - tengdamamma.

Ingibjörg Þ.Þ. (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 11:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband