22.7.2008 | 23:07
Á haus
Jæja, Danmerkurævintýrið hefst á morgun. Við erum búin að pakka - að mestu og erum með allt of mikinn farangur. Við verðum sennilega að leigja okkur rútu þegar við lendum í Köben til að komast með okkar hafurtask á áfangastað!
Krakkarnir eru orðnir spenntir en líka dálítið kvíðnir. Leifur sagði í dag að hann vildi ekki vera lengur á Íslandi en Hildur fékk magapínu og vildi ekki fara í afmælisveislu sem hún var boðin í. Sem betur fer lagaðist hún í maganum og hún skemmti sér vel í veislunni.
Tenglar
Mínir tenglar
Fjölmiðlar
Vinnan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gangi ykkur vel á morgun. Þetta er auðvitað rosa spennó að flytja svona af landi brott. Skil krílin ykkar alveg að vera svolítið stressuð og spennt yfir þessu. Góða ferð og gangi ykkur allt í haginn.
Lína (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 23:23
Góða ferð Sigga mín. Leyfðu mér að heyra frá þér, svo förum við Ívan af stað með þér þegar þú skilar þér heim ;)´Hafið það hryllilega gott. Auður
audur (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 00:41
Góða ferð. Þetta verður allt í glimrandi gengi hjá ykkur í KÖben ;)
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 23.7.2008 kl. 08:34
Jæja velkomin til Danmerkur krakkarofur!!!!!!!Aldeilis vedrid leikur vid ykkur alltaf gott vedur her. Eg Thelma Ros og Agnes Lilja sitjum uti i solinni og njotum tess ad slappa af medam Styrmir vinnur og vinnur. Karlar eru til tess 111eda tannig. Gangi ykkur vel ad pakka upp og koma ykkur fyrir a nyjum stad i nyju landi. Verum i bandi astarkvedja Gudny fraenka
Gudny frænka (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 12:49
Hæ, hugsa mikið til ykkar. Til hamingju með nýja tungusófann. Vonandi komist þið bráðum í tölvusamband. Söknum ykkar ógurlega. Kristín spurði í dag af hverju Jón hefði þurft að fara í skóla í Kaupmannahöfn. Hún saknar greinilega krakkanna.
Knús og bús, Steinvör
Steinvör (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 16:05
Ja hérna hér...annaðhvort eruð þið algjörlega dottin í bjórinn þarna í hitabylgjunni í útlöndum eða að DK sé internetlaust svæði ???
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 1.8.2008 kl. 20:56
Vona að ykkur gangi vel að aðlagast nýju landi og húsnæði. Vanar manneskjur þegar flutningar eru annars vegar.
Ég er viss um að þetta er upphaf mjög skemmtilegs kafla í lífi ykkar allra.
Bestu kveðjur úr reykvískri rigningu, JL
Jónína (IP-tala skráð) 3.8.2008 kl. 17:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.