9.12.2008 | 20:05
Já, ráðherra!
Ég held að hann Björgvin greyið sé ekkert betri en ráðherrann í þáttunum Já, ráðherra. Hann veit bókstaflega ekkert í sinn haus. Maðurinn er bankamálaráðherra og ætti að vera vel inni í öllu sem snýr að bönkunum ekki síst núna á þessum síðustu og verstu tímum. En ... hann kemur af fjöllum í hvert sinn sem minnst er á banka við hann. Bank, bank Björgvin! Vaknaðu og farðu að sinna starfi þínu - ef þú værir í almennilegri vinnu væri löngu búið að reka þig.
Björgvin vissi ekki um KPMG fyrr en í gær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Mínir tenglar
Fjölmiðlar
Vinnan
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Með öllu ólíðandi. Veit ekki hvurskonar fíflagangur er í gangi hérna....
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 9.12.2008 kl. 22:04
Bank, bank Björgvin
Þetta er snilld! Hann er svo ósköp vankaður drengurinn.
Góða dvöl í DK
Sigrún G. (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 22:12
Hahahhahaa bank, bank Björgvin. Ég er búin að vera gapandi af undrun yfir fáfræði hans út af hinum ýmsu málum. OMG.
Steinvör (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 01:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.