Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Góðar fréttir

Mikið er ánægjulegt að bensínverðið ógurlega hefur lækkað - þótt ekki sé nema um tvær krónur. Ég hélt ég yrði að hjóla í vinnuna það sem eftir væri og það er náttúrlega allt of heilsusamlegt. Áfram svona!
mbl.is Verð á eldsneyti lækkar um 2 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leifur leiður

Leifur Már útskrifaðist frá hinum frábæra leikskóla Ásum í dag. Hann varð leiður þegar hann kvaddi vini sína og kennarana. Hins vegar var Leifur mjög spenntur að sýna okkur útskriftarbókina sína og óskasteininn sem hann fékk í kveðjugjöf. Svo förum við í útskriftarferð vestur á firði á næstunni!

Brúðkaupsafmæli

Hvað heitir þriggja ára brúðkaupsafmæli? Varla silfur?


Fjórir pottar

Það mætti halda að við séum að gera gæðakönnun á heitum pottum. Fór fjórum sinnum í heitan pott á fjórum dögum - á þremur mismunandi stöðum. Ég held ég fái mér heitan pott þegar/ við flytjum heim aftur. Best að byrja bara strax að safna.

 


Bloggvinur - hvar ertu?

Hvernig er þetta eiginlega með mínar heimavinnandi vinkonur í barneignarleyfi? Ætla þær ekkert að samþykkja mig sem bloggvin??

Er bara verið að skipta á bleium allan daginn eða hvað?


Sólarstuð

Veðrið leikur við okkur hér á suðvesturhorninu. Annað en fyrir norðan þar sem eiginmaðurinn er í veiði. Þar er hiti við frostmark eða í kringum þrjár gráður. Hann er í þremur flíspeysum og úlpu á meðan við spókum okkur á stuttermabol og sandölum. 

Annars er ég að velta því fyrir mér hvenær Guðný, stóra frænka, fer að blogga. Er ekki komin tíma á frúnna?


Bloggvinur nr. 1

Jæja, þá hef ég eignast bloggvin númer eitt. Það er Helga frænka. Betur þekkt sem Þórhildur skólastjóri, ég meina skólastýra.

Kátar kveðjur

Mér finnst sérlega leiðinlegt að kveðja fólk. Við fórum út eftir fjórar vikur og það eru allir farnir að kveðja okkur.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband