Skólagangan byrjar - á ný

Á morgun verður eiginmaðurinn námsmaður á ný! Hildur spurði hann við matarborðið hvort hann færi í grunnskóla eða háskóla ... Leifur heldur áfram í aðlögun á leikskólanum sínum, sem gengur vel, og Hildur fer í skólann en það hefur komið dálítið bakslag í það. Hún harðneitaði að fara í skólann á föstudaginn og endaði með að koma hálftíma of seint eftir mikið havarí. Pabbi hennar sat með henni í tíma í smástund á meðan hún var að jafna sig en ég vona að morgundagurinn verði betri.

Helgin var nokkuð annasöm. Solla og Veróníka komu í heimsókn á föstudaginn. Á laugardaginn fórum við á Amagerstrand, sem er æði, þaðan á Nýhöfn að hitta Guðrúnu Hrund og loks í Lindevanghave þar sem við grilluðum með nýju bestu vinum okkar, þ.e. Íslendingunum sem búa hér í Revyhaven. Í dag fórum við til Palla og Júlíönu og svo verður nóg að gera í næstu viku.

Jón Áki, fyrrum fiskifæla, veiddi eins og hann hefði aldrei gert neitt annað í veiðiferðinni. Hann hirti 8 silunga og sleppti allavega öðru eins. Þessir átta fara í reyk og verða síðan borðaðir með bestu lyst hér í Köben.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En Hildur æðisleg, pabbi í grunnskóla

Steinvör (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 11:30

2 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Thetta er rosalega sætt, en ekkert skrítid. Hugsa sér hvad madur lærir margt um heiminn á thessum árum. Thegar ég var nokkrum árum eldri en Hildur, vissi é ekki hvort háskóli eda menntaskóli kæmi fyrst. En ég er heldur ekki eins klár og hún.

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 1.9.2008 kl. 21:33

3 identicon

Hæ. Í hvorn skólann fer hann? kv Guðný frænka.

Guðný frænka (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 17:29

4 identicon

Er það furða þó barnið spyrji. Amman er enn í grunnskóla og hún hefur oft farið þangað með henni.

Og afi hennar er enn að baksa í grunnskóla.

Auðvitað liggur það beint við að pabbinn fari þangað líka.

Kveðja,

Amma Imba sem er enn í barnaskóla.

Imba amma (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 20:24

5 identicon

Halló halló. Ég byrjaði aftur í grunnskóla fyrir ári. Kv Guðný frænka

Guðný frænka (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 18:31

6 identicon

hmmm, á ekkert að blogga meira ?????

kveðja, St

steinvör (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 09:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband